Vinnuumhverfi
Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk
útvarpsbylgna (RF) við notkun í hefðbundinni stöðu við
eyrað eða þegar það er haft að minnsta kosti 2,2
sentimetri (7/8 tommur) frá líkamanum. Ef taska,
beltisklemma eða hald er notað þegar tækið er borið á
líkamanum við notkun ætti slíkur búnaður ekki að
innihalda málm og halda ætti tækinu að minnsta kosti
í þeirri fjarlægð frá líkamanum sem nefnd var hér á
undan.
Til að hægt sé að senda gagnaskrár eða skilaboð þarf
góða tengingu við símkerfið. Sending gagnaskráa eða
skilaboða getur tafist þar til slík tenging er tiltæk.
Fylgið ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum þar til
sendingu er lokið.
Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni gætu
dregist að tækinu. Ekki má geyma kreditkort eða aðra
segulmagnaða hluti með geymsluminni nálægt tækinu
því upplýsingar sem þar eru geymdar gætu þurrkast út.