Ökutæki
Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í
vélknúnum ökutækjum, séu þau ekki rétt upp sett eða
ekki nægilega varin, svo sem rafeindastýrða
eldsneytisgjöf, rafeindastýrð hemlakerfi (með
læsivörn), rafeindastýrða hraðastýringu og
loftpúðakerfi. Frekari upplýsingar er að finna hjá
framleiðanda bílsins eða tækjabúnaðarins.
Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða
setja tækið upp í ökutæki. Röng uppsetning eða
viðgerð kann að valda hættu og ógilda ábyrgðina.
Ganga skal reglulega úr skugga um að allur þráðlaus
tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt uppsettur og vinni
rétt. Ekki má geyma eða flytja eldfima vökva,
lofttegundir eða sprengifim efni í sama rými og tækið,
hluta úr því eða aukabúnað með því. Hafa skal í huga
að loftpúðar blásast upp af miklu afli. Ekki koma tækinu
eða fylgihlutum fyrir á loftpúðasvæðinu.
Slökkva skal á tækinu áður en gengið er um borð í
flugvél. Notkun þráðlausra fjarskiptatækja í flugvél
getur skapað hættu við stjórn flugvélarinnar og kann
að vera ólögleg.