Pörun tækja
Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Tenging
>
Bluetooth
.
Opnaðu flipann pöruð tæki.
Fyrir pörun skaltu ákveða þitt eigið lykilorð (1-16
tölustafir) og biðja notanda hins tækisins um að nota
sama lykilorð. Tæki sem ekki hafa notendaviðmót eru
með fast lykilorð. Aðeins þarf að slá inn lykilorðið þegar
tækin eru tengd í fyrsta skipti. Hægt er að heimila
tenginguna að pöruninni lokinni. Með því að para
saman tæki og heimila tenginguna verður fljótlegra að
koma á tengingu þar sem ekki þarf að samþykkja
tenginguna á milli paraðra tækja í hvert skipti sem
henni er komið á.
Lykilorð fyrir ytri SIM-aðgang verður að vera 16
tölustafir.
Þegar ytri SIM-stilling er virk í þráðlausa tækinu er
aðeins hægt að hringja og svara símtölum með
samhæfum aukabúnaði sem er tengdur við það (t.d.
bílbúnaði).
Ekki er hægt að hringja úr þráðlausa tækinu þegar
stillingin er virk, nema í neyðarnúmerið sem er forritað
í tækið.
Eigi að hringja úr tækinu þarf fyrst að slökkva á ytri SIM-
stillingu. Ef tækinu hefur verið læst skal fyrst slá inn
lykilnúmerið til að opna það.
1. Veldu
Valkostir
>
Nýtt parað tæki
. Tækið byrjar
þá að leita að Bluetooth-tækjum á svæðinu. Ef gögn
hafa áður verið send um Bluetooth-tengingu birtist
listi með fyrri leitarniðurstöðum. Leitað er að fleiri
Bluetooth-tækjum innan svæðisins með því að velja
Fleiri tæki
.
126
Teng
in
ga
r
2. Veldu tækið sem para á tækið þitt við og sláðu inn
lykilorðið. Slá verður inn sama lykilorð í hitt tækið.
3. Veldu
Já
til að koma alltaf sjálfkrafa á tengingu milli
tækisins þíns og annars tækis, og
Nei
til ef þú vilt
staðfesta tenginguna í hvert skipti sem tækin reyna
að tengjast. Eftir pörunina er tækið vistað á síðu
paraðra tækja.
Til að gefa paraða tækinu gælunafn velurðu
Valkostir
>
Gefa stuttnefni
. Gælunafnið birtist
eingöngu í þínu tæki.
Pörun er eytt með því að velja hana og svo
Valkostir
>
Eyða
. Til að eyða öllum pörunum velurðu
Valkostir
>
Eyða öllum
. Ef tækið er tengt við annað tæki og
pöruninni við það er eytt, er pörunin fjarlægð strax og
tengingunni er slitið.
Til að leyfa pöruðu tæki að tengjast sjálfkrafa við þitt
tæki velurðu
Stilla sem heimilað
. Hægt er að koma á
tengingu á milli tækisins þíns og hins tækisins án
vitneskju þinnar. Ekki þarf að samþykkja eða heimila
tenginguna sérstaklega. Notaðu þessa stöðu eingöngu
fyrir eigin tæki, líkt og samhæf höfuðtól eða tölvu, eða
tæki þeirra sem þú þekkir og treystir. Ef þú vilt
samþykkja tengingarbeiðni frá hinu tækinu í hvert
skipti velurðu
Stilla sem óheimilað
.
Til að nota Bluetooth-hljóðaukabúnað, t.d.
handfrjálsan Bluetooth-búnað eða höfuðtól, þarf að
para tækið við aukabúnaðinn. Lykilorðið og aðrar
leiðbeiningar eru í notendahandbók aukabúnaðarins.
Kveiktu á hljóðaukabúnaðinum til að tengjast við hann.
Ákveðnar gerðir hljóðaukabúnaðar tengjast sjálfkrafa
við tækið. Ef það gerist ekki skaltu opna flipann fyrir
pöruð tæki, velja aukabúnaðinn og
Valkostir
>
Tengjast við hljóðtæki
.