WLAN-hjálp
Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Tenging
>
St.net.hjálp
.
WLAN-hjálpin auðveldar þér að finna og tengjast við
þráðlaust staðarnet. Þegar forritið er opnað leitar
tækið að þráðlausum staðarnetum og birtir þau í lista.
Veldu
Valkostir
og svo úr eftirfarandi:
•
Uppfæra
— Til að uppfæra lista yfir tiltæk þráðlaus
staðarnet.
•
Sía þráðlaus staðarnet
— Síar út þráðlaus
staðarnet á listanum yfir fundin netkerfi. Völdu
netkerfin eru síuð út næst þegar forritið leitar að
þráðlausum staðarnetum.
•
Ræsa vefskoðun
— Skoða vefinn með
aðgangspunkti þráðlausa staðarnetsins.
•
Halda vefskoðun áfram
— Halda vefskoðun áfram
með virkri tengingu þráðlauss staðarnets.
129
Teng
in
ga
r
•
Aftengjast v. staðarn.
— Til að aftengjast
þráðlausa staðarnetinu.
•
Upplýsingar
— Til að sjá upplýsingar um þráðlausa
staðarnetið.
Mikilvægt: Alltaf skal virkja eina af tiltækum
dulkóðunaraðferðum til að auka öryggi þráðlausrar
staðarnetstengingar. Notkun dulkóðunar dregur úr
hættunni á því að einhver fái aðgang að gögnunum
þínum án heimildar.
Nota staðarnetshjálp á heimaskjánum
Á heimaskjánum sýnir staðarnetshjálpin stöðu
þráðlausra staðarnetstenginga og leita að netkerfum.
Ef uppsetningarhjálp fyrir þráðlaust staðarnet virkjast
ekki sjálfgefið á heimaskjánum geturðu virkjað hana í
stillingum heimaskjás. Til að skoða valkosti í boði
skaltu velja línuna sem sýnir stöðuna. Þú getur ræst
vafrann þegar þú ert tengd/ur við þráðlaust staðarnet,
tengst við netsímaþjónustuna, aftengst við
staðarnetið, leitað að staðarnetum og kveikt og slökkt
á sjálfvirkri leit. Þessir valkostir fara eftir stöðu þinni.
Þegar slökkt er á leit að þráðlausum staðarnetum og
engin tenging við þráðlaust staðarnet er virk birtist
Slökkt á staðarnetsleit
á heimaskjánum. Til að
kveikja á leit að þráðlausum staðarnetum og leita að
staðarnetum velurðu línuna sem sýnir stöðuna.
Til að ræsa leit að þráðlausum staðarnetum velurðu
línuna sem sýnir stöðuna og svo
Leita að
staðarnetum
.
Til að slökkva á leit að þráðlausum staðarnetum
velurðu línuna sem sýnir stöðuna og
Slökkva á sjálfv.
leit
.
Þegar
Ræsa vefskoðun
eða
Nota fyrir
er valið býr
uppsetningarhjálpin sjálfkrafa til aðgangsstað fyrir
það þráðlausa staðarnet sem er valið. Einnig er hægt
að nota aðgangsstaðinn með öðrum forritum sem
þurfa tengingu við þráðlaust staðarnet.
Ef þú velur öruggt þráðlaust staðarnet er beðið um
lykilorð. Nauðsynlegt er að slá inn SSID-kóða til að
tengjast við falið netkerfi.
Til að nota þráðlausa staðarnetið sem fannst fyrir
netsímtalstengingu velurðu línuna sem sýnir stöðuna,
Nota fyrir
, síðan netsímtalaþjónustu og þráðlausa
staðarnetið sem á að nota.