Tónastillingar
Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Stillingar
.
Veldu
Almennar
>
Sérstillingar
>
Tónar
og úr
eftirfarandi:
•
Hringitónn
— Velja hringitón af listanum eða velja
Sækja tóna
til að opna bókamerkjamöppu með
lista yfir bókamerki til að hlaða niður hringitónum
með vafranum. Ef þú ert með tvær símalínur getur
þú notað mismunandi hringitón fyrir hvora línu.
•
Hringitónn myndsímtala
— Veldu hringitón fyrir
myndsímtöl.
•
Segja nafn hringjanda
— Ef þessi stilling er valin
og einhver á tengiliðalistanum hringir í þig heyrist
hringitónn í símanum sem er sambland af upplestri
á nafni tengiliðarins og hringitóninum sem þú
valdir.
•
Gerð hringingar
— Velja gerð hringingar.
•
Hljóðstyrkur hringingar
— Stilla hljóðstyrk
hringitónsins.
•
Skilaboðatónn
— Velja tón fyrir móttekin
textaskilaboð.
•
Tölvupósttónn
— Velja tón fyrir móttekin
tölvupóstskeyti.
•
Dagbókartónn
— Velja dagbókartón.
•
Vekjaratónn
— Velja tón fyrir vekjaraklukkur.
•
Varar við með titringi
— Láta tækið titra við
símhringingu eða skilaboð.
•
Takkatónar
— Stilla hljóðstyrk takkatóna.
•
Aðvörunartónar
— Kveikja eða slökkva á
viðvörunartónum.
•
Opnunarhljóð
eða
Lokunarhljóð
— Velja tón sem
heyrst þegar síminn er opnaður eða honum er lokað.