Öryggi tækis og SIM-korts
Til að breyta PIN-númerinu velurðu
Sími og SIM-
kort
>
PIN-númer
. Nýja númerið verður að vera 4 til
8 tölustafir. PIN-númerið fylgir SIM-kortinu og tryggir
að óviðkomandi geti ekki notað það. Ef rangt PIN-
númer er slegið inn þrisvar sinnum í röð lokast númerið
og opna verður það með PUK-númeri áður en hægt er
að nota SIM-kortið aftur.
Til að læsa takkaborðinu sjálfkrafa eftir tiltekinn tíma
velurðu
Sími og SIM-kort
>
Sjálfvirk læsing takka
.
Til að stilla eftir hversu langan tíma tækið læsist
sjálfkrafa, þannig að aðeins er hægt að nota það ef
réttur læsingarkóði er sleginn inn, velurðu
Sími og
SIM-kort
>
Sjálfv. læsingartími síma
. Sláðu inn
tímann í mínútum eða veldu
Enginn
til að gera
valkostinn óvirkan. Þegar tækið er læst er áfram hægt
að svara innhringingum og hugsanlega er áfram hægt
að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í
það.
Til að velja nýjan læsingarkóða velurðu
Sími og SIM-
kort
>
Læsingarkóði
. Forstillta númerið er 12345.
Sláðu inn fyrra númerið og svo það nýja tvisvar. Nýi
kóðinn má vera 4-255 stafa langt. Hægt er að nota bæði
tölu- og bókstafi og há- og lágstafi. Tækið lætur þig vita
ef eitthvað er rangt við númerið.