Skilaboð
Veldu
Valmynd
>
Skilaboð
.
Í Skilaboðum (sérþjónusta), geturðu sent og tekið við
textaskilaboðum, margmiðlunarskilaboðum,
hljóðskilaboðum og tölvupóstskeytum. Einnig er hægt
að taka við vefþjónustuboðum, skilaboðum frá
endurvarpa, sérstökum skilaboðum sem innihalda
gögn, og senda þjónustuskipanir.
Til að geta sent og tekið á móti skilaboðum gæti þurft
að gera eftirfarandi:
• Setja gilt SIM-kort í tækið og vera innan
þjónustusvæðis.
• Ganga úr skugga um að símkerfið styðji þá gerð
skilaboða sem á að senda og að opnað hafi verið
fyrir þau á SIM-kortinu.
• Færa inn stillingar fyrir internetaðgangsstað í
tækinu.
• Færa inn stillingar fyrir tölvupóst í tækinu.
• Tilgreina stillingar textaskilaboða í tækinu.
• Tilgreina stillingar textaskilaboða á tækinu.
Verið getur að tækið beri kennsl á söluaðila SIM-
kortsins og færi sjálfkrafa inn ákveðnar stillingar fyrir
skilaboð. Ef ekki þarftu hugsanlega að færa
stillingarnar inn handvirkt, eða hafa samband við
þjónustuveituna til að fá stillingarnar.