
Sending DTMF-tóna
Þú getur sent DTMF-tóna (dual tone multi-frequency) á
meðan símtal er í gangi til að stjórna talhólfinu þínu
eða öðrum sjálfvirkum símaþjónustum.
DTMF-tónaröð send
1. Hringdu og bíddu þar til viðtakandinn svarar.
2. Veldu
Valkostir
>
Senda DTMF-tóna
.
3. Sláðu inn DTMF-tónaröðina eða veldu fyrirfram
skilgreinda röð.
DTMF-tónaröð hengd við tengiliðaspjald
1. Veldu
Valmynd
>
Tengiliðir
. Veldu tengilið og svo
Valkostir
>
Breyta
>
Valkostir
>
Bæta við
upplýsingum
>
DTMF-tónar
.
2. Sláðu inn tónaröðina. Ýtt er á p til að setja inn um
2 sekúndna hlé fyrir eða á milli DTMF-tóna. Til að
láta tækið senda DTMF-tóna eingöngu þegar
Senda
DTMF-tóna
hefur verið valið á meðan á símtali
stendur ýtirðu á w. Ýttu endurtekið á * til að slá inn
p og w.
3. Veldu
Lokið
.