Nokia E75 - Talað inn á rás eða við hóp

background image

Talað inn á rás eða við hóp

Til að tala inn á rás, þegar þú hefur skráð þig inn í

kallkerfið, skaltu ýta á kallkerfistakkann. Tónn gefur til

kynna að aðgangur sé veittur. Haltu

kallkerfistakkanum áfram inni á meðan þú talar.

Slepptu takkanum þegar þú hefur lokið við að tala.
Ef þú reynir að svara rás með því að ýta á

kallkerfistakkann þegar einhver annar er að tala, þá

birtist

Augnablik

. Slepptu kallkerfistakkanum, bíddu

eftir því að viðmælandinn hætti að tala og ýttu svo

aftur á kallkerfistakkann. Einnig er hægt að halda

kallkerfistakkanum inni og bíða eftir því að

Talaðu

birtist.

71

Sími

background image

Þegar talað er inn á rás fær sá orðið sem er fyrstur til

að ýta á kallkerfistakkann þegar einhver lýkur máli

sínu.
Til að sjá virka aðila á meðan þú tekur þátt í samtali á

rásinni skaltu velja

Valkostir

>

Virkir meðlimir

.

Þegar kallkerfissímtalinu er lokið skaltu velja

Aftengjast

.

Til að bjóða nýjum aðilum að taka þátt í samtali velurðu

rásina þegar þú hefur komið á tengingu við hana. Veldu

Valkostir

>

Senda boð

til að opna boðskjáinn. Þú

getur aðeins boðið nýjum meðlimum að vera með ef

þú ert gestgjafi einkarásar eða ef rásin er almenn. Boð

á rásir eru textaskilaboð.
Þú getur einnig auglýst rásina þannig að aðrir viti af

henni og geti slegist í hópinn. Veldu

Valkostir

>

Senda boð

og sláðu inn umbeðnar upplýsingar.