Nokia E75 - Snið

background image

Snið

Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Snið

.

Þú getur stillt og sérsniðið hringitóna, viðvörunartóna

og aðra tóna tækisins fyrir mismunandi viðburði,

umhverfi og viðmælendahópa. Sniðið sem er í notkun

sést efst á heimaskjánum. Ef sniðið Almennt er í notkun

birtist aðeins dagsetningin.
Til að búa til nýtt snið skaltu velja

Valkostir

>

Búa til

nýtt

og tilgreina stillingarnar.

Til að laga snið að þínum þörfum velurðu sniðið og svo

Valkostir

>

Sérsníða

.

Til að breyta sniði velurðu sniðið og svo

Valkostir

>

Gera virkt

. Ótengda sniðið hindrar þig í að kveikja

óvart á tækinu, senda eða taka á móti skilaboðum, nota

þráðlaust staðarnet, Bluetooth-tengingu, GPS eða FM-

útvarp. Það lokar einnig öllum þeim

internettengingum sem eru virkar þegar sniðið er

valið. Ótengda sniðið kemur ekki í veg fyrir að nýjum

þráðlausum staðarnetstengingum eða Bluetooth-

tengingum sé komið á seinna eða að GPS eða FM-útvarp

sé endurræst. Fylgdu því viðeigandi

öryggisráðstöfunum þegar þú notar þessa möguleika.

Til að stilla sniðið þannig að það sé virkt í allt að 24

tíma skaltu fletta að sniðinu, velja

Valkostir

>

Tímastillt

og svo tímann. Þegar tíminn er liðinn verður

fyrra sniðið sem var ekki tímastillt virkt aftur. Þegar

snið er tímastillt birtist á heimaskjánum. Ekki er

hægt að stilla ótengda sniðið á tíma.
Til að eyða sniði sem þú hefur búið til velurðu

Valkostir

>

Eyða sniði

. Þú getur ekki eytt forstilltu

sniðunum.