Sérsníða snið
Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Snið
.
29
Sérstillingar
Flettu að sniði og veldu
Valkostir
>
Sérsníða
og svo
úr eftirfarandi:
•
Hringitónn
— Velja hringitón af listanum eða velja
Sækja tóna
til að opna bókamerkjamöppu með
lista yfir bókamerki til að hlaða niður hringitónum
með vafranum. Ef þú ert með tvær símalínur getur
þú notað mismunandi hringitón fyrir hvora línu.
•
Hringitónn myndsímtala
— Veldu hringitón fyrir
myndsímtöl.
•
Segja nafn hringjanda
— Ef þetta er valið og
einhver á tengiliðalistanum hringir í þig heyrist
hringitónn í símanum sem er sambland af upplestri
á nafni tengiliðarins og hringitóninum sem þú
valdir.
•
Gerð hringingar
— Velja gerð hringingar.
•
Hljóðstyrkur hringingar
— Stilla hljóðstyrk
hringitónsins.
•
Skilaboðatónn
— Veldu tón fyrir móttekin
textaskilaboð.
•
Tölvupósttónn
— Veldu tón fyrir móttekin
tölvupóstskeyti.
•
Varar við með titringi
— Láta tækið titra þegar
hringt er í þig.
•
Takkatónar
— Stilla hljóðstyrk takkatónanna.
•
Aðvörunartónar
— Kveikja eða slökkva á
viðvörunartónum. Þessi stilling hefur einnig áhrif á
tóna einhverra leikja og Java™-forrita.
•
Gera viðvart um
— Stilla tækið þannig að það
hringi aðeins þegar um er að ræða símanúmer í
ákveðnum viðmælendahópi. Enginn hringitónn
heyrist ef fólk utan þess hóps hringir.
•
Hringitónn Kallkerfis
— Velja hringitón fyrir
kallkerfissímtöl.
•
Staða Kallkerfis
— Velja kallkerfisstöðu fyrir hvert
snið.
•
Opnunarhljóð
— Velja tón sem heyrist þegar
rennilokan er opnuð.
•
Lokunarhljóð
— Velja tón sem heyrist þegar
rennilokunni er lokað.
•
Nafn sniðs
— Slá inn heiti á nýju sniði eða
endurnefna snið sem þegar er til. Sniðunum
Almennt og Ótengt er ekki hægt að gefa annað heiti.