Algengar aðgerðir í
ýmsum forritum
Eftirfarandi aðgerðir er að finna í ýmsum forritum:
Til að breyta um snið, slökkva á tækinu eða læsa því
skaltu ýta snöggt á rofann.
27
Nokia E75 - Helstu aðgerðir
Ef margir flipar (sjá
mynd) eru í forriti er
flett til hægri eða
vinstri til að opna
flipa.
Til að vista
breytingar á
stillingum í forriti
velurðu
Til baka
.
Til að vista skrá
velurðu
Valkostir
>
Vista
. Vistunarmöguleikar fara
eftir því hvaða forrit er verið að nota.
Til að senda skrá velurðu
Valkostir
>
Senda
. Hægt er
að senda skrár í tölvupósti, með
margmiðlunarskilaboðum eða ýmsum tengiaðferðum.
Texti er afritaður með því að halda skiptitakkanum inni
og velja textann með skruntakkanum. Haltu
skiptitakkanum inni og veldu
Afrita
. Til að líma skaltu
fletta að staðnum þar sem líma á textann inn, halda
skiptitakkanum inni og velja
Líma
. Ekki er víst að hægt
sé að nota þessa aðferð í forritum þar sem eru sérstakar
skipanir til að afrita og líma.
Til að velja mismunandi atriði, til dæmis skilaboð, skrár
eða tengiliði, skaltu fletta að atriðinu sem á að velja.
Veldu
Valkostir
>
Merkja/Afmerkja
>
Merkja
til að
velja eitt atriði, eða
Valkostir
>
Merkja/Afmerkja
>
Merkja allt
til að velja öll atriðin.
Ábending: Til að velja nánast öll atriðin skaltu
fyrst velja
Valkostir
>
Merkja/Afmerkja
>
Merkja allt
, velja svo atriðin sem þú vilt ekki og
Valkostir
>
Merkja/Afmerkja
>
Afmerkja
.
Til að velja hlut (til dæmis viðhengi í skjali) skaltu fletta
að hlutnum þannig að ferhyrnd merki birtist sitt hvoru
megin við hlutinn.