Áskrift að þjónustu
Veldu
Valmynd
>
Forrit
>
Miðlar
>
Samn. á neti
.
Hægt er að gerast áskrifandi að samnýtingarþjónustu
á netinu með því að fara á heimasíðu
þjónustuveitunnar og kanna hvort Nokia-tækið þitt
samhæfist þjónustunni. Þar eru leiðbeiningar um
hvernig hægt er að gerast áskrifandi. Þú færð
notandanafn og lykilorð til að geta sett áskriftina upp
í tækinu.
1. Til að gera þjónustu virka opnarðu
samnýtingarforritið í tækinu, velur þjónustu og
Valkostir
>
Virkja
.
2. Gefðu tækinu tíma til að koma á nettengingu. Ef
beðið er um internetaðgangsstað velurðu hann af
listanum.
3. Skráðu þig í áskriftina eins og kveðið er á um á
heimasíðu þjónustuveitunnar.
Þjónustuveitan eða viðkomandi þriðji aðili gefa
upplýsingar um hvort þjónusta þriðja aðila sé tiltæk og
hvað sú þjónusta og gagnaflutningur kosta.