Myndskeið flutt úr tölvu
Færðu eigin myndskeið frá samhæfum tækjum yfir í
Kvikmyndabankann með samhæfri USB-snúru.
Kvikmyndabankinn mun einungis birta myndskeið sem
eru á sniði sem tækið styður.
1. Til að sjá tækið í tölvu sem gagnageymslu, sem
hægt er að flytja allar gagnaskrár í, skaltu koma á
tengingu með USB-gagnasnúru.
2. Veldu
Gagnaflutningur
sem gerð tengingar. Setja
þarf samhæft minniskort í tækið.
3. Veldu myndskeiðin sem þú vilt afrita af tölvunni.
4. Færðu myndskeiðin yfir í E:\My Videos á
minniskortinu.
Myndskeiðin sem búið er að færa birtast í
möppunni Myndskeiðin mín í
Kvikmyndabankanum. Myndefnisskrár í öðrum
möppum tækisins sjást ekki.