
Útskýringar
Útskýringar
3G
Þriðju kynslóðar farsímakerfi. Stafrænt
kerfi fyrir farsíma sem miðar að
hnattrænni notkun og veitir aukna
bandvídd. Með 3G fær notandi
fjarskiptabúnaðar aðgang að margs
konar þjónustu, líkt og margmiðlun.
Beintenging
(ad-hoc)
Þráðlaus staðarnet (WLAN) þar sem tvö
eða fleiri tæki tengjast við hvert annað
um WLAN án aðgangsstaðar.
Fótspor
Fótspor eru upplýsingabútar sem
miðlarinn gefur notanda til að geyma
upplýsingar um heimsóknir á vefsvæði.
Þegar tekið er við fótsporum getur
miðlarinn metið notkun viðkomandi á
vefsvæðinu, áhugasvið notanda,
lestrarsmekk o.s.frv.
DNS
Þjónusta lénsheita. Internetþjónusta
sem þýðir lénsheiti, eins og
www.nokia.com, yfir í IP-tölur líkt og
192.100.124.195. Það er auðveldara að
muna lénsheiti en þar sem internetið
byggist á IP-númerum er þessi þýðing
nauðsynleg.
DTMF-tónar DTMF-tónastrengir (Dual Tone
Multifrequency). Tónvalssímar nota
DTMF-kerfið. DTMF úthlutar hverjum
takka tilgreinda tíðni, eða tón, svo að
örtölvuverkið geti auðveldlega borið
kennsl á hann. Með DTMF-tónum er
hægt að eiga samskipti við talhólf,
tölvustýrð símkerfi og svo framvegis.
EAP
EAP (Extensible authentication
protocol). EAP-viðbætur eru notaðar
fyrir sannvottun á milli þráðlausra
tækja og sannvottunarmiðlara á
þráðlausum netum.
EGPRS
Þróað GPRS. EGPRS svipar til GPRS en
býður upp á enn hraðari tengingu.
Upplýsingar um framboð og
gagnaflutningshraða fást hjá
þjónustuveitunni.
158
Útský
ringar

GPRS
GPRS (General packet radio service).
GPRS gerir farsímum kleift að tengjast
gagnanetum með þráðlausri tengingu
(sérþjónusta). GPRS notast við
pakkagagnatækni þar sem upplýsingar
eru sendar í stuttum gagnakippum um
farsímakerfið. Kosturinn við að senda
gögn í pökkum er að símkerfið er
aðeins upptekið þegar gögn eru send
eða móttekin. Þar sem GPRS notast við
símkerfið á skilvirkan hátt gerir það
kleift bæði að setja gagnatengingar
upp hratt og mikinn hraða
gagnaflutninga.
Þú verður að vera í áskrift að GPRS-
þjónustunni. Nánari upplýsingar um
framboð og áskrift að GPRS fást hjá
þjónustuveitunni.
Meðan á símtali venjulegu stendur er
ekki hægt að koma á GPRS-tengingu og
allar virkar GPRS-tengingar eru settar í
bið, nema að símkerfið styðji tvöfaldan
gagnaflutning.
GPS
Global positioning system. GPS er
þráðlaust leiðsagnarkerfi sem nær yfir
allan hnöttinn.
HSDPA
High-speed downlink packet access.
HSDPA flytur háhraðagagnasendingar í
3G-endastöðvar, og tryggir að
notendur sem þurfa á skilvirkum
margmiðlunarmöguleikum að halda
hagnist á gagnahraða sem áður var
ekki í boði vegna takmarkana
fjarskiptakerfisins.
HTTP
HTTP (Hypertext transfer protocol).
Samskiptareglur fyrir skjöl sem
notaðar eru á vefnum.
HTTPS
HTTP um örugga tengingu.
IMAP4
IMAP4 (Internet mail access protocol),
útgáfa 4. Samskiptareglur sem eru
notaðar til að fá aðgang að ytra
pósthólfi.
Internetaðg
angsstaður
Aðgangsstaður er staðurinn þar sem
tækið tengist við netkerfi. Áður en
hægt er að nota tölvupóst og
margmiðlunarþjónustu eða tengjast
við internetið og opna vefsíður verður
að tilgreina aðgangsstaði fyrir þessa
þjónustu.
Grunnnet
Þráðlaust staðarnet (WLAN) þar sem
tæki eru tengd við WLAN um
aðgangsstað.
PIN
Personal identity number. PIN-
númerið ver tækið þitt fyrir óleyfilegri
notkun. PIN-númerið fylgir með SIM-
kortinu. Ef beiðni um PIN-númer er
valin þarf að gefa upp númerið í hvert
skipti sem kveikt er á tækinu. PIN-
númerið verður að vera 4 til 8
tölustafir.
159
Útský
ringar

PIN2
PIN2-númerið fylgir með sumum SIM-
kortum. Gefa þarf upp PIN2-númerið til
að fá aðgang að ákveðnum aðgerðum
sem SIM-kortið styður. Lengd PIN2-
númersins er 4 til 8 tölustafir.
POP3
POP3 (Post office protocol), útgáfa 3.
Staðlaðar póstsamskiptareglur sem
hægt er að nota til að fá aðgang að
fjartengdu pósthólfi.
PUK og PUK2 PUK-númer (Personal Unblocking Key).
PUK- og PUK2 númer eru nauðsynleg til
að breyta lokuðu PIN-eða PIN2-númeri.
Númerið er átta stafir.
SIP
Session Initiation Protocol. SIP-reglur
eru notaðar til að koma á, breyta og
slíta vissum tegundum samskipta við
einn eða fleiri þátttakendur.
SSID
SSID (Service set identifier). SSID er
heiti sem auðkennir tiltekið WLAN.
Straumspilu
n
Í straumspilun eru skrár spilaðar beint
af internetinu án þess að þeim sé fyrst
hlaðið niður í tækið.
UMTS
UMTS-farsímakefi (Universal mobile
telecommunications system). UMTS er
þriðju kynslóðar farsímakerfi. Auk
símtala og gagnasendinga er einnig
hægt að senda hljóð- og hreyfimyndir
til þráðlausra tækja um UMTS-
farsímakerfi.
Þegar tækið er notað í GSM- og UMTS-
símkerfum er hægt að hafa margar
gagnatengingar í gangi samtímis og
aðgangsstaðir geta deilt
gagnatengingu. Í UMTS-símkerfinu er
ekki slökkt á gagnatengingu þegar
símtal er í gangi. Til dæmis er hægt að
skoða vefsíður með meiri hraða en
áður var mögulegt um leið og talað er
í símann.
UPIN
PIN-númer notað í UMTS-símkerfi.
UPUK
UPIN opnunarnúmer. UPUK-númer er
nauðsynlegt til að breyta lokuðu UPIN-
eða PIN2 númeri. Númerið er átta
stafir.
USIM
SIM-kort notað í UMTS-símkerfi.
USSD-skipun Þjónustubeiðni, eins og beiðni um að
ræsa forrit eða breyta ýmsum
stillingum utan frá, sem hægt er að
senda símafyrirtækinu eða
þjónustuveitunni með tækinu.
Netsímtöl
(VoIP)
Talsími yfir internet VoIP eru
samskiptareglur sem auðvelda símtöl
yfir IP-net, eins og internetið.
VPN
VPN (Virtual private network). VPN
kemur á öruggri tengingu við samhæft
innra net fyrirtækja og þjónustu, eins
og t.d. tölvupóst.
WAP
Wireless application protocol. WAP er
alþjóðlegur staðall fyrir þráðlaus
samskipti.
160
Útský
ringar

WEP
WEP (Wired equivalent privacy). WEP er
dulkóðunaraðferð sem dulkóðar gögn
áður en þau eru send á þráðlausu neti.
WLAN
Þráðlaust staðarnet.
WPA
Wi-Fi varinn aðgangur. Öryggisaðferð
fyrir WLAN.
WPA2
Wi-Fi varinn aðgangur 2.
Öryggisaðferð fyrir WLAN.
161
Útský
ringar