VPN f. fars.
Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Stillingar
og
Tenging
>
VPN
.
Nokia VPN-netforrit fyrir farsíma (virtual private
network) kemur á öruggri tengingu við samhæft innra
net fyrirtækis og þjónustu, eins og tölvupóst. Tækið
þitt tengist internetinu með farsímakerfinu og tengist
þannig VPN-gátt sem veitir aðgang að samhæfu innra
neti fyrirtækisins. VPN-forritið notar IPSec-tækni (IP
Security). IPSec er rammi opinna staðla til að tryggja
örugg gagnaskipti yfir IP-net.
VPN-stefnur skilgreina aðferðina sem VPN-forritið og
VPN-gáttin nota til að sannvotta hvort annað, og
dulkóðunaralgrímin sem þau nota til að tryggja leynda
139
Öryggi
og gagnast
jórnun
gagnanna. Leitaðu frekari upplýsinga um VPN-stefnur
í tæknideild fyrirtækis þíns.
Til að setja upp og stilla VPN-forritið, vottorð og stefnur
skaltu hafa samband við tæknideild fyrirtækisins. Eftir
að stefna hefur verið sett upp er VPN-tengingaraðferð
búin til sjálfkrafa á áfangastað á innra neti.
Veldu
VPN
>
VPN-skrá
til að skoða notkunarskrá fyrir
uppsetningar, uppfærslur og samstillingar á VPN-
stefnum og aðrar VPN-tengingar.