Notkunarleyfi
Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM)
fylgir opnunarlykill sem tilgreinir hvernig hægt er að
nota efnið.
Ef tækið er með OMA DRM-varið efni skal nota
öryggisafritunaraðgerðina í Nokia PC Suite til að taka
öryggisafrit af bæði opnunarlyklunum og efninu.
Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni glatast það efni
ásamt opnunarlyklum þess ef minni tækisins er
forsniðið. Einnig gætu opnunarlyklarnir og efnið
glatast ef skrár í tækinu skemmast. Glatist
opnunarlyklarnir eða efnið getur það takmarkað
möguleikann á að nota efnið aftur. Þjónustuveitan
gefur nánari upplýsingar.
Sumir opnunarlyklar kunna að vera tengdir tilteknu
SIM-korti og aðeins er hægt að fá aðgang að varða
efninu ef SIM-kortið er í tækinu.
Til að skoða leyfin eftir gerð skaltu velja
Gild leyfi
,
Ógild leyfi
eða
Ónotuð leyfi
.
Til að skoða upplýsingar um leyfi velurðu
Valkostir
>
Um leyfi
.
Fyrir hverja mynd- og hljóðskrá eru birtar eftirfarandi
upplýsingar:
138
Öryggi
og gagnast
jórnun
•
Staða
— Staðan er
Leyfi er gilt
,
Leyfi er
útrunnið
eða
Leyfi er ekki enn gilt
.
•
Sending efnis
—
Leyft
merkir að þú getur sent
skrána í annað tæki.
Ekki leyft
merkir að þú getir
ekki sent skrána í annað tæki.
•
Efni í síma
—
Já
merkir að ef skráin er geymd í
tækinu er slóð hennar birt.
Nei
merkir að
viðkomandi skrá er ekki geymd í tækinu.
Veldu
Ógild leyfi
>
Valkostir
>
Sækja leyfi
í
leyfisskjánum til að gera leyfi virkt. Samþykktu að
koma á nettengingu og verður þér þá beint á vefsvæði
þar sem hægt er að kaupa heimildir fyrir skrána.
Til að fjarlægja notkunarheimildir opnarðu flipann fyrir
gilda lykla eða flipann fyrir lykla sem ekki eru í notkun,
flettir að viðkomandi skrá og velur
Valkostir
>
Eyða
.
Ef fleiri en ein notkunarheimild tengist sömu skrá
verður öllum heimildunum eytt.
Á hóplyklaskjánum eru sýndar allar skrár sem tengjast
hópheimild. Ef mörgum hljóð- eða myndskrám hefur
verið hlaðið niður með sömu heimild eru þær allar
birtar á þessum skjá. Hægt er að opna hópskjáinn í
flipanum fyrir gilda lykla eða ógilda lykla. Til þess að
opna þessar skrár skaltu opna hópheimildamöppuna.