Dulkóðun
Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Sími
>
Dulkóðun
.
Dulkóðaðu tækið þitt eða minniskortið til að koma í
veg fyrir að utanaðkomandi aðilar komist yfir
mikilvægar upplýsingar.
Dulkóðun minnis tækisins
eða minniskorts
Til að dulkóða minni tækisins velurðu
Minni símans
.
Til að dulkóða minniskort velurðu
Minniskort
og svo
úr eftirfarandi:
•
Dulkóða án þess að vista lykil
— Dulkóðaðu
minniskort án þess að vista dulkóðunarlykilinn. Ef
þú velur þennan valkost geturðu ekki notað
minniskortið í öðrum tækjum og ef þú velur
upprunalegar stillingar geturðu ekki afkóðað
minniskortið.
•
Dulkóða og vista lykil
— Dulkóðaðu minniskortið
og vistaðu lykilinn handvirkt í sjálfgefinni möppu.
Geymdu lykilinn á öruggum stað utan tækisins, til
öryggis. Til dæmis geturðu sent lykilinn í tölvuna.
Sláðu inn aðgangssetningu fyrir lykilinn og heiti
fyrir skrá lykilsins. Aðgangssetningin ætti að vera
löng og flókin.
•
Dulkóða með endursettum lykli
— Dulkóðaðu
minniskortið með lyklinum sem þú hefur fengið.
Veldu skrá lykils og sláðu inn aðgangssetninguna.