Notandahandbók Nokia E75
Útgáfa 3
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
YFIRLÝSING UM SAMKVÆMNI
Hér með lýsir NOKIA CORPORATION því yfir að varan RM-412 er í samræmi við grunnkröfur og aðrar kröfur sem gerðar
eru í tilskipun 1999/5/EB. Eintak af yfirlýsingu um samkvæmni er að finna á slóðinni http://www.nokia.com/phones/
declaration_of_conformity/.
Nokia, Nokia Connecting People, Eseries, Nokia E75 og N-Gage eru vörumerki eða skrásett vörumerki Nokia Corporation. Nokia tune er tónmerki Nokia
Corporation. Önnur vöruheiti eða heiti fyrirtækja sem nefnd eru hér geta verið vörumerki eða vöruheiti viðkomandi eigenda
Hvers konar afritun, yfirfærsla, dreifing eða varðveisla á hluta skjals þessa eða skjalinu öllu er óheimil nema að fyrirfram fengnu skriflegu samþykki
Nokia. Nokia framfylgir stefnu sem felur í sér stöðuga þróun. Nokia áskilur sér rétt til að gera breytingar og úrbætur á hvers konar vöru sem getið er
í þessu skjali án undangenginnar tilkynningar.
US Patent No 5818437 and other pending patents. T9 text input software Copyright © 1997-2009. Tegic Communications, Inc. All rights reserved.
This product includes software licensed from Symbian Software Ltd © 1998-2009. Symbian and Symbian OS are trademarks of Symbian
Ltd.
Java and all Java-based marks are trademarks or registered trademarks of Sun Microsystems, Inc.
Portions of the Nokia Maps software are ©1996-2009 The FreeType Project. All rights reserved.
Þessi vara hefur leyfið MPEG-4 Visual Patent Portfolio License (i) til einkanotkunar og án viðskiptatilgangs í tengslum við upplýsingar sem hafa verið
kóðaðar samkvæmt staðlinum MPEG-4 Visual Standard af neytanda í persónulegum tilgangi og án viðskiptatilgangs og (ii) til notkunar í tengslum við
MPEG-4 hreyfimynd sem fengin er hjá hreyfimyndaveitu með leyfi. Ekkert leyfi er veitt eða undirskilið til neinnar annarrar notkunar.
Viðbótarupplýsingar, sem varða til dæmis notkun í auglýsingum, innan fyrirtækis og í viðskiptum, má fá hjá MPEG LA, LLC. Sjá http://www.mpegla.com.
AÐ ÞVÍ MARKI SEM VIÐEIGANDI LÖG LEYFA SKAL NOKIA EÐA EINHVERJIR AF LEYFISVEITENDUM ÞESS UNDIR ENGUM KRINGUMSTÆÐUM BERA SKAÐABÓTAÁBYRGÐ
VEGNA TAPS Á GÖGNUM, TEKJUTJÓNI EÐA Á NEINU SÉRSTÖKU, TILVILJANAKENNDU, AFLEIDDU EÐA ÓBEINU TJÓNI HVERNIG SEM ÞAÐ VILL TIL.
INNTAK ÞESSA SKJALS ER AFHENT „EINS OG ÞAÐ KEMUR FYRIR“. UMFRAM ÞAÐ, ER LÖG ÁSKILJA, ER ENGIN ÁBYRGÐ VEITT, HVORKI BERUM ORÐUM NÉ
UNDIRSKILIN, Á NÁKVÆMNI, ÁREIÐANLEIKA EÐA INNTAKI ÞESSA SKJALS. Á ÞAÐ MEÐAL ANNARS, EN EKKI EINGÖNGU, VIÐ UM SÖLUHÆFNI EÐA ÁBYRGÐ Á AÐ
VARAN HENTI TILTEKINNI NOTKUN. NOKIA ÁSKILUR SÉR RÉTT TIL AÐ ENDURSKOÐA SKJALIÐ EÐA DRAGA ÞAÐ TIL BAKA HVENÆR SEM ER ÁN UNDANGENGINNAR
TILKYNNINGAR.
Bakhönnun (e. reverse engineering) hugbúnaðar í tækinu er bönnuð eins og lög segja til um. Að því marki er þessi notendahandbók inniheldur
einhverjar takmarkanir á fyrirsvari, ábyrgðum og skaðabótaskyldu Nokia, auk takmarkana á fjárhæð skaðabóta, skulu þær takmarkanir einnig ná til
sérhvers fyrirsvars, ábyrgða og skaðabótaskyldu leyfisveitanda Nokia, auk takmarkana á fjárhæð skaðabóta.
Framboð á tilteknum vörum, forritum og þjónustu fyrir þessar vörur getur verið breytilegt eftir svæðum. Kannaðu það, ásamt tungumálavalkostum,
hjá Nokia söluaðila. Tæki þetta kann að innihalda vörur, tækni eða hugbúnað sem lýtur útflutningslögum og reglugerðum í Bandaríkjunum og öðrum
löndum. Breytingar á flutningsleiðum sem ekki samræmast lögum eru óheimilar.
TILKYNNING FRÁ FCC/INDUSTRY CANADA
Tækið þitt getur valdið truflunum á sjónvarpi eða útvarpi (til dæmis þegar sími er notaður nálægt viðtökutæki). FCC eða Industry Canada geta krafist
þess að þú hættir að nota símann ef ekki er hægt að koma í veg fyrir slíkar truflanir. Ef þú þarft aðstoð skaltu hafa samband við þjónustuaðila í nágrenni
við þig. Þetta tæki er í samræmi við 15. hluta af reglum FCC. Notkun þess er háð eftirfarandi tveimur skilyrðum: (1) Tækið má ekki valda skaðlegum
truflunum; og (2) tækið verður að taka við öllum truflunum sem það verður fyrir, þ.m.t. truflunum sem geta valdið óæskilegri virkni þess. Sérhverjar
breytingar sem Nokia hefur ekki samþykkt berum orðum geta ógilt heimild notandans til notkunar búnaðarins.
/Útgáfa 3 IS